Fotbolti.net
02.07.18 - 17:27
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Reina og Strinic til AC Milan (Staðfest)

Reina og Strinic til AC Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan er búið að ganga frá kaupum á Pepe Reina og Milan Strinic, sem koma frítt til félagsins.
Hinn 35 ára gamli Reina kemur eftir þrjú góð ár hjá Napoli þar sem liðið komst grátlega nálægt sögulegum Ítalíumeistaratitli.

Reina lék fyrir Barcelona og Villarreal áður en hann gerði garðinn frægan með Liverpool.

Strinic kemur eftir eitt ár hjá Sampdoria, en hann gerði aðeins eins árs samning við félagið eftir að hafa verið keyptur af Napoli á gjafaprís.

Strinic er þrítugur og á 46 landsleiki að baki fyrir Króatíu. Hann hefur spilað 43 leiki í Serie A.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.