Fotbolti.net
02.07.18 - 16:19
Magnús Már Einarsson

Sokratis Papastathopoulos til Arsenal (Staðfest)

Sokratis Papastathopoulos til Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Arsenal

Arsenal hefur keypt varnarmanninn Sokratis Papastathopoulos frá Borussia Dortmund á 17,6 milljónir punda.
Hinn þrítugi Papastathopoulos á að baki 79 landsleiki með gríska landsliðinu.

Hann hefur tvívegis orðið þýskur meistari með Dortmund og einu sinni bikarmeistari.

Á ferli sínum hefur hann einnig leikið með Werder Bremen, AC Milan, Genoa og AEK Aþenu.

Papastathopoulos fer í treyju númer 5 hjá Arsenal en hann skrifaði undir langtíma samning hjá félaginu í dag.

HE’S HERE 😁 #SOKRATIS pic.twitter.com/fnVp54fjto

— Arsenal FC (@Arsenal) July 2, 2018

All of us when we finally announced #SOKRATIS 😃 pic.twitter.com/Q7QCShJHA5

— Arsenal FC (@Arsenal) July 2, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.