Fotbolti.net
02.07.26 - 21:01
Brynjar Ingi Erluson

HM: Öruggt hjá Evrópumeisturunum

Mikel Oyarzabal skoraði tvö og er nú kominn með fjögur HM-mörk

Mikel Oyarzabal skoraði tvö og er nú kominn með fjögur HM-mörk

Canon

Mynd: EPA

Spánn 3 - 0 Austurríki
1-0 Mikel Oyarzabal ('36 )
2-0 Pedro Porro ('66 )
3-0 Mikel Oyarzabal ('89 )
Evrópumeistarar Spánar eru örugglega komnir áfram í 16-liða úrslit heimsmeistaramótsins eftir 3-0 sigur á Austurríki á SoFi-leikvanginum í Los Angeles í kvöld.

Spánverjar voru ekki langt frá því að komast yfir strax á 2. mínútu þegar Lamine Yamal kom sér í góða skotstöðu, en Alexander Schlager varði frá honum.

Spánn var með yfirhöndina í fyrri hálfleik en náði lengi vel ekki að nýta hana. Austurríki átti í vandræðum með að halda boltanum og komst lítið áleiðis sóknarlega.

Strax eftir fyrstu vatnspásuna kom Marc Cucurella boltanum í netið eftir hornspyrnu, en markið var dæmt af vegna brots á Schlager í markinu. Dómurinn virtist strangur þegar endursýningar voru skoðaðar og minnti nokkuð á markið sem var tekið af Jonathan Tah í leik Þýskalands og Paragvæ á dögunum.

Schlager varði frábærlega frá Mikel Oyarzabal á 33. mínútu en kom engum vörnum við þremur mínútum síðar. Cucurella sendi þá boltann inn á Oyarzabal, sem stýrði honum í hornið og skoraði sitt þriðja mark á mótinu.

Í síðari hálfleik setti Ralf Rangnick tvo stóra framherja inn á í von um að koma Austurríki aftur inn í leikinn. Marko Arnautovic og Sasa Kalajdzic komu báðir inn á, en aðeins fáeinum mínútum síðar tvöfaldaði Spánn forystuna.

Alex Baena fékk boltann vinstra megin í teignum og kom honum inn á Pedro Porro, sem skoraði sitt fyrsta landsliðsmark.

Austurríkismenn reyndu að setja pressu á lokakaflanum og fengu tvær ágætar tilraunir í gegnum Carney Chukwuemeka og Stefan Posch. Hinum megin bjargaði David Alaba frábærlega á línu og hélt Austurríki inni í leiknum um stund.

Oyarzabal gekk svo endanlega frá Austurríki undir lok venjulegs leiktíma. Cucurella átti þá stórkostlega fyrirgjöf frá vinstri inn á Oyarzabal, sem lagði boltann niðri í hægra hornið.

Vel klárað hjá Spánverjanum, sem er nú kominn með fjögur mörk á heimsmeistaramótinu.

Öruggt og þægilegt hjá Spánverjum, sem eru komnir í 16-liða úrslit þar sem þeir mæta annað hvort Króatíu eða Portúgal. Austurríki hefur lokið leik á HM.
Pedro Porro skoraði fyrsta landsliðsmark sitt

Pedro Porro skoraði fyrsta landsliðsmark sitt

Canon

Mynd: EPA

Austurríki er úr leik

Austurríki er úr leik

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.