Fotbolti.net
02.07.26 - 17:56
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarlið Austurríkis og Spánar: Sá leikja- og markahæsti á bekknum

Dani Olmo er í byrjunarliði Spánverja

Dani Olmo er í byrjunarliði Spánverja

Canon

Mynd: EPA

Austurríki og Spánn mætast í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins á SoFi-leikvanginum í Los Angeles klukkan 19:00 í kvöld.
Kevin Danso, Michael Gregoritsch og Paul Wanner koma allir inn í liðið frá 3-3 jafnteflinu gegn Alsír í lokaumferð riðlakeppninnar. Stærstu fréttirnar eru þær að Marko Arnautovic dettur á bekkinn, en hann er bæði leikja- og markahæsti leikmaður í sögu austurríska landsliðsins, og markahæsti maður landsliðsins á heimsmeistaramótinu.

Hann var tvisvar á bekknum í riðlakeppninni, en byrjaði síðasta leikinn gegn Alsír þar sem hann skoraði.

Á meðan eru tvær breytingar á liði Spánverja. Dani Olmo og Pedro Porro koma inn en Marcos Llorente og Mikel Merino detta út.

Lamine Yamal er á sínum stað á hægri vængnum og þá er Rodri á miðsvæðinu.

Leikurinn er í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.

Austurríki: Schlager; Posch, Danso, Alaba, Laimer; Seiwald, Schlager; Schmid, Wanner, Sabitzer; Gregoritsch.

Spánn: Simon; Porro, Cubarsi, Laporte, Cucurella; Pedri, Rodri, Baena; Yamal, Oyarzabal, Olmo.
Arnautovic er á bekknum hjá Austurríki

Arnautovic er á bekknum hjá Austurríki

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.