Fotbolti.net
02.07.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

„Hef lengi hrifist af Mateus“

Mateus Fernandes í treyju Tottenham.

Mateus Fernandes í treyju Tottenham.

Canon

Mynd: Tottenham

Tottenham staðfesti í morgun kaup á portúgalska miðjumanninum Mateus Fernandes sem kemur frá West Ham á metfé. Þessi 21 árs gamli miðjumaður hefur leikið síðustu tvö tímabil í ensku úrvalsdeildinni með Southampton og West Ham.
Tottenham kaupir Fernandes fyrir metfé (Staðfest)
TENGT EFNI

Tottenham kaupir Fernandes fyrir metfé (Staðfest)

„Ég hef hrifist af Mateus lengi því hann sameinar gæði á boltann með ákefð og leikgreind sem er svo mikilvægt í því hvernig fótbolta við vilum spila," segir Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham.

„Þrátt fyrir að vera þetta ungur er hann kominn með góða reynslu í ensku úrvalsdeildinni og hefur sýnt gæði og stöðugleika á þessu getustigi. Honum líður vel undir pressu, tengir vel við sóknarleikinn, vinnur vel fyrir liðið og hefur hugrekki til að gera eitthvað á erfiðum augnablikum."

Sjálfur segist Fernandes spenntuyr fyrir næsta skrefi á ferli sínum.

„Tottenham er stórt félag og stjórinn er stór ástæða fyrir því að ég ákvað að koma. Við áttum mjög gott spjall, sjáum fótboltann á sama hátt. Við viljum fara inn á völlinn með sterka liðsheild, baráttuanda og orku; reyna að vinna hvern einasta leik," segir Fernandes.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.