Fotbolti.net
02.07.26 - 18:13
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

Frá Dortmund til Lyon (Staðfest)

Frá Dortmund til Lyon (Staðfest)
Canon

Mynd: Lyon

Belgíski kantmaðurinn Julien Duranville er genginn í raðir Lyon frá Borussia Dortmund.
Þessi tvítugi leikmaður er uppalinn hjá Anderlecht í heimalandinu en hefur verið á mála hjá Dortmund frá árinu 2023.

Sama ár var hann settur á lista Guardian yfir bestu leikmenn heims sem fæddir eru árið 2006, en hann missti af stórum hluta fyrsta tímabilsins vegna meiðsla.

Á síðasta tímabili var hann ekki inni í myndinni hjá Dortmund og var lánaður til Basel í Sviss.

Kantmaðurinn vildi komast í stærra hlutverk á komandi leiktíð, eitthvað sem Dortmund gat ekki lofað honum, og félagið samþykkti því að selja hann til Lyon.

Í dag skrifaði hann undir fimm ára samning og var formlega kynntur á samfélagsmiðlum félagsins.

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.