Keane sér England ekki fara langt - „Þar byrja vandræðin fyrir alvöru“

England lenti í vandræðum með Kongó en náði sigrinum.

Mynd: EPA

Sparkspekingurinn Roy Keane.

Roy Keane spáir því að England muni falla út í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Enska liðið lenti undir gegn Kongó í gær en kom til baka með tveimur mörkum Harry Kane.
Framundan er leikur gegn Mexíkó á Azteca vellinum á miðnætti á sunnudagskvöld og sigurliðið mun svo mæta sigurvegaranum úr viðureign Noregs og Brasilíu.

„Maður vissi það þegar maður horfði á leikinn gegn Kongó að England myndi vinna. Þegar þú ert með leikmann eins og Harry Kane þa nær hann að koma þér úr svona vandræðum. Þú átt alltaf möguleika," segir Keane.
„Ég býst við því að þeir vinni Mexíkó en þegar liðið fer að mæta liðum eins og Brasilíu og Argentínu þá byrja vandræðin fyrir alvöru. Ég tel að England hafi ekki mörg fleiri vopn í vopnabúrinu og þess vegna held ég að þeir falli út í 8-liða úrslitum."
„Þeir leikmenn sem eru heimsklassa í liðinu hafa lagt sitt á vogarskálarnar en þeir geta bara komið þér ákveðið langt. Ég tel að England sé ekki með mikið fleiri gíra, þeir eru ekki með það aukalega sem Frakkland er til dæmis með."
Jordan Pickford markvörður enska liðsins hefur fengið gagnrýni og Keane telur að hann hafi átt að vera mark Brian Cipenga fyrir Kongó í gær.
„Ég hef líka áhyggjur af markverðinum. Ef hann hefur eitthvað til brunns að bera, þá viðurkennir hann að hann hefði átt að verja þetta. Ég er ekki einn af þeim sem segja að markvörður eigi ekki að fá á sig mark við nærstöngina, því slíkt getur gerst, en fyrst hann náði snertingu á boltann held ég að hann sé mjög svekktur út í sjálfan sig," segir Keane.