02.08.16 - 10:44
Elvar Geir Magnússon
Chelsea lánar Baba Rahman til Schalke (Staðfest)

Aftur til Þýskalands.

Mynd: Getty Images

Aftur til Þýskalands.

Mynd: Getty Images

Schalke hefur fengið varnarmanninn Baba Rahman á láni frá Chelsea í eitt tímabil.
Þessi 22 ára Ganverji spilaði 51 leik fyrir Augsburg í Þýskalandi áður en hann gekk í raðir Chelsea fyrir ári síðan. Hann skrifaði undir fimm ára samning á Stamford Bridge.

Raman lék alls 23 leiki fyrir Chelsea á síðasta tímabili en náði ekki að festa sig í sessi.
Hann snýr nú aftur til Þýskalands þar sem hann mun spila undir stjórn fyrrum þjálfara síns hjá Augsburg, Markus Weinzierl en hann tók við stjórnartaumunum hjá Schalke í júní.