Fotbolti.net
02.08.16 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Edgardo Bauza nýr landsliðsþjálfari Argentínu (Staðfest)

Edgardo Bauza nýr landsliðsþjálfari Argentínu (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Edgardo Bauza hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Argentínu en þetta var staðfest í dag.

Hinn 58 ára gamli Bauza var síðast þjálfari Sau Paulo í Brasilíu.

Hann tekur við af Gerardo Martino sem hætti eftir að Argentína tapaði í úrslitum Copa America í júní.
Diego Simeone og Mauricio Pochettino höfðu einnig verið orðaðir við stöðuna en Bauza hefur nú verið ráðinn.

Bauza stýrir sínum fyrsta leik í næsta mánuði þegar Argentína hefur leik í undankeppni HM.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.