Fotbolti.net
02.08.16 - 12:12
Elvar Geir Magnússon

Gylfi með nýjan samning við Swansea (Staðfest)

Gylfi í eldlínunni.

Gylfi í eldlínunni.

Canon

Mynd: Getty Images

Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við Swansea.

Þetta eru gleðitíðindi fyrir stuðningsmenn félagsins en Swansea er líklega að missa fyrirliða sinn, varnarmanninn Ashley Williams, til Everton.
Gylfi átti tvö ár eftir af samningi sínum við Swansea en hann skoraði 11 mörk í 36 leikjum síðasta tímabil og var algjör lykilmaður.

Talað var um að önnur félög hefðu áhuga á Gylfa en hann hefur ákveðið að halda tryggð við Swansea.

Fyrsti leikur Swansea í ensku úrvalsdeildinni þetta tímabilið verður 13. ágúst gegn Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum í Burnley.

Hér að neðan má sjá flott myndband sem Swansea setti saman með Gylfa.

✍️ We\'re delighted to announce that Gylfi Sigurdsson has signed a new four-year deal.

➡️https://t.co/1KPbUyvDW7 pic.twitter.com/dPVbzI9Snk

— Swansea City AFC (@SwansOfficial) August 2, 2016


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.