Fotbolti.net
02.08.16 - 15:45
Elvar Geir Magnússon

Idrissa Gueye til Everton (Staðfest)

Idrissa Gueye.

Idrissa Gueye.

Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn Idrissa Gueye er kominn til Everton frá Aston Villa. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning.
Gueye kom til Aston Villa frá Lille síðastliðið sumar. Hann var einn af fáu ljósu punktunum hjá Aston Villa þegar liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni í á síðasta tímabili.

Gueye er 26 ára senegalskur landsliðsmaður en hann er varnarsinnaður miðjumaður.

„Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað til Everton. Ég get ekki beðið eftir því að hefja tímabilið hér,\" sagði hann við heimasíðu Everton.

Ronald Koeman, stjóri Everton, segir að Gueye komi með aukin gæði í leikmannahóp Everton.

CONFIRMED: Everton sign Idrissa Gueye from @AVFCOfficial on a four-year deal. #WelcomeIdrissa pic.twitter.com/3EyaYGquIg

— Everton (@Everton) August 2, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.