02.08.16 - 12:29
Magnús Már Einarsson
Jón Daði til Wolves (Staðfest)

Jón Daði er mættur til Wolves.

Mynd: Wolves

Jón Daði er mættur til Wolves.

Mynd: Wolves
Wolves hefur keypt íslenska landsliðsmanninn Jón Daða Böðvarsson frá Kaiserslautern. Jón Daði skrifaði undir þriggja ára samning en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
QPR sýndi Jóni Daða einnig áhuga en samkvæmt frétt Westlondonsport.com borgar Wolves 2,7 milljónir punda fyrir hann.

„Þetta er félag með mikinn metnað og frábæra aðstöðu. Þegar það er til staðar þá var þetta auðveld ákvörðun og ég er virkilega ánægður,\" sagði Jón Daði.
Jón Daði gekk til liðs við Kaiserslautern um síðustu áramót en góð frammistaða hans á EM vakti áhuga hjá félögum á Englandi.
Kínverskir fjárfestar keyptu Wolves á dögunum og ætla sér stóra hluti með félagið.
Walter Zenga tók við liðinu um helgina eftir að Kenny Jackett var rekinn á föstudag. Zenga er gríðarlega reyndur stjóri en hann hefur stýrt sextán liðum á ferlinum.
Wolves endaði í 14. sæti í ensku Championship deildinni í fyrra en liðið mætir Rotherham í fyrstu umferð á nýju tímabili á laugardaginn.