Fotbolti.net
02.08.16 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Kevin-Prince Boateng í Las Palmas (Staðfest)

Kevin-Prince Boateng í Las Palmas (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kevin-Prince Boateng hefur gert eins árs samning við Las Palmas í spænsku úrvalsdeildinni.

Hinn 29 ára gamli Kevin-Prince hefur verið án félags undanfarnar vikur.
Kevin Prince spilaði með Schalke frá 2013 og þar til í janúar á þessu ári þegar hann samdi við AC Milan í annað skipti á ferlinum.

Samningur Kevin-Prince hjá AC Milan rann út á dögunum og hann fékk ekki nýjan samning þar. Hann ætlar nú að spreyta sig í spænska boltanum á komandi tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.