02.08.16 - 17:30
Magnús Már Einarsson
KF fær tvo frá Spáni (Staðfest)

Halldór Ingvar verður ekki meira með KF í sumar vegna meiðsla.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KF í 2. deildinni hefur fengið Isaac Sutil Maldonado og Daniel Cabrera Sanchez til liðs við sig.
Isaac er markvörður en hann á að fylla skarð Halldórs Ingvars Guðmundssonar sem verður ekki meira með á tímabilinu.
Dani er sókndjarfur miðjumaður sem er í landsliði Nigaragúa en hann er einnig með spænskt vegabréf.
„Þessir strákar frá Spáni eru reynslumiklir og eiga að leiðbeina okkar unga hóp,\" sagði Jón Stefán Jónsson, þjálfari KF, í samtali við Fótbolta.net í dag.
KF er með fimm stig á botninum í 2. deildinni en liðið mætir Hetti á fimmtudaginn.