Fotbolti.net
02.08.16 - 09:12
Magnús Már Einarsson

Leroy Sane til Manchester City (Staðfest)

Mættur til Manchester City.

Mættur til Manchester City.

Canon

Mynd: Manchester City

Manchester City hefur keypt kantmanninn Leroy Sane frá Schalke á 37 milljónir punda.

Hinn tvítugi Sane skrifaði undir fimm ára samning við Manchester City en hann verður í treyju númer 19 hjá félaginu.

Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hefur verið á höttunum á eftir Sane í allt sumar og skiptin eru nú gengin í gegn.
Sane er þýskur landsliðsmaður en hann skoraði átta mörk í 33 leikjum með Schalke á síðasta tímabili.

„Ein af ástæðum þess að ég ákvað að ganga í raðir City var Pep Guardiola. Hann sannfærði mig um að koma hingað og halda áfram að bæta mig. Ég veti að ég get lært margt undir hans stjórn og tekið næstu skref á ferli mínum,\" sagði Sane.

It’s time to #WelcomeLeroy to City! MORE ➡️ https://t.co/6njzfmEfqR https://t.co/fRn0Nk6pLY

— Manchester City (@ManCity) August 2, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.