Fotbolti.net
02.08.16 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Pione Sisto til Celta (Staðfest)

Pione Sisto til Celta (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Danski kantmaðurinn Pione Sisto er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Celta Vigo.

Sisto er 21 árs gamall og hefur gert 20 mörk í 90 leikjum fyrir Midtyjlland þar sem hann hefur leikið frá 15 ára aldri.
Stórlið á borð við Barcelona, Milan, Juventus, Porto og Arsenal hafa sýnt Sisto áhuga en nú er hann kominn til Celta fyrir upphæð sem er talin vera í kringum 5 milljónir evra.

Sisto skoraði í 2-1 sigri Midtjylland á Manchester United í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar í febrúar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.