Fotbolti.net
02.08.18 - 17:12
Ívan Guðjón Baldursson

Alfie Mawson til Fulham (Staðfest)

Alfie Mawson til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fulham er búið að festa kaup á miðverðinum eftirsótta Alfie Mawson. Kaupverðið er óuppgefið en talið er að Fulham hafi greitt rúmlega 20 milljónir punda.
Mawson er 24 ára og hefur verið einn besti leikmaður Swansea undanfarin ár.

Everton og Burnley voru einnig á höttunum eftir Mawson en nýliðar Fulham höfðu betur á endanum.

Fulham hefur verið að styrkja sig talsvert í sumar þar sem menn á borð við Jean Michael Seri, Aleksandar Mitrovic og Andre Schürrle eru búnir að skrifa undir samninga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.