Fotbolti.net
02.08.18 - 20:10
Ívan Guðjón Baldursson

Ashley Williams lánaður til Stoke (Staðfest)

Everton keypti Ashley Williams fyrir 12 milljónir punda sumarið 2016.

Everton keypti Ashley Williams fyrir 12 milljónir punda sumarið 2016.

Canon

Mynd: Getty Images

Stoke City er búið að krækja í enska miðvörðinn Ashley Williams á láni frá Everton út tímabilið.
Williams er 33 ára gamall og þótti meðal bestu varnarmanna enska boltans þegar hann lék fyrir Swansea.

Williams á 79 landsleiki að baki fyrir Wales og var fyrirliðinn á EM 2016, þegar þjóðin var slegin út í undanúrslitum.

Hann er sjötti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Stoke í sumar en félagið er þegar búið að krækja í nokkra öfluga leikmenn til að reyna að komast beint aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir fallið í vor.

„Það er mikilvægt að hafa alvöru samkeppni um miðvarðarstöðurnar. Williams kemur inn í hópinn með mikil gæði og mikla reynslu,\" sagði Gary Rowett, stjóri Stoke.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.