02.08.18 - 19:16
Ívan Guðjón Baldursson
Crystal Palace náði í Max Meyer (Staðfest)

Meyer gæti reynst ótrúlega dýrmætur á Selhurst Park.

Mynd: Getty Images

Crystal Palace er búið að ganga frá félagaskiptum þýska ungstirnisins Max Meyer.
Meyer er 22 ára og hefur leikið fyrir Schalke allan atvinnumannaferilinn en hann yfirgaf félagið frítt í sumar þegar samningur hans rann út.
Hann var mjög eftirsóttur í sumar þar sem félög á borð við Arsenal og Liverpool sýndu honum áhuga. Spurningamerki hefur þó verið sett við hegðun og viðhorf Meyer eftir tíma hans hjá Schalke.
Meyer er gríðarlega öflugur miðjumaður sem á rétt tæplega 200 leiki að baki fyrir Schalke og hefur spilað 52 leiki fyrir yngri landslið Þýskalands.
Meyer skein skært á Ólympíuleikunum 2016 þar sem hann gerði fjögur mörk í sex leikjum. Hann hefur þá gert eitt mark í fjórum A-landsleikjum.
Miðjumaðurinn skrifaði undir þriggja ára samning við Palace og mun klæðast treyju númer 7.