02.08.18 - 19:34
Ívan Guðjón Baldursson
Higuain og Caldara til Milan - Bonucci aftur til Juve (Staðfest)

Bonucci og Higuain fara í sitthvora áttina.

Mynd: Getty Images

AC Milan og Juventus eru búin að staðfesta félagaskipti Gonzalo Higuain, Mattia Caldara og Leonardo Bonucci.
Argentínski markarefurinn Higuain kemur til Milan á eins árs lánssamning með kaupmöguleika. Milan greiðir 16 milljónir evra fyrir lánið og þarf 33 milljónir í viðbót til að ganga frá kaupunum.
Higuain hefur skorað 111 mörk fyrir Napoli og Juventus í 177 Serie A leikjum en þar áður var hann byrjunarliðsmaður hjá Real Madrid.
Félögin skipta þá á Caldara og Bonucci sem eru báðir miðverðir og greiðir Juve rúmlega 30 milljónir evra með sínum manni.
Caldara var keyptur til Juve í fyrra og lánaður aftur til Atalanta þar sem hann átti magnað tímabil og var einn af bestu varnarmönnum ítalska boltans.
Bonucci heldur aftur til Juve eftir að hafa verið keyptur til Milan í fyrra og gerður að fyrirliða.