Fotbolti.net
02.08.18 - 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kouyate til Crystal Palace (Staðfest)

Kouyate skiptir um lið.

Kouyate skiptir um lið.

Canon

Mynd: Getty Images

Crystal Palace staðfest í gær kaup á senegalska miðjumanninum Cheikhou Kouyate.

Kouyate kemur frá West Ham fyrir óuppgefna upphæð en talið er að kaupverðið sé rétt undir 10 milljónum punda. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við Palace.
Hinn 28 ára gamli Kouyate var í fjögur ár hjá West Ham og spilaði á þeim tíma 129 leiki í ensku úrvalsdeildinni og skoraði 12 mörk.

Hann er annar leikmaður sem Palace fær í sumar á eftir markverðinum Vicente Guaita sem kom frítt frá Getafe á Spáni.

„Þetta er rétti tíminn fyrir mig, ég þarf nýja áskorun,\" sagði Kouyate þegar hann skrifaði undir.

Kouyate verður ekki síðasti leikmaðurinn sem Palace fær í sumar því Max Meyer, þýski miðjumaðurinn er við það að ganga í raðir Lundúnafélagsins. Hann kemur á frjálsri sölu en hann var síðast á mála hjá Schalke. Hann er aðeins 22 ára.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.