Fotbolti.net
02.08.18 - 16:03
Elvar Geir Magnússon

Muto kominn til Newcastle (Staðfest)

Yoshinori Muto er ánægður með að vera kominn í Newcastle.

Yoshinori Muto er ánægður með að vera kominn í Newcastle.

Canon

Mynd: Newcastle

Japanski landsliðsframherjinn Yoshinori Muto hefur fengið atvinnuleyfi og er formlega orðinn leikmaður Newcastle.

Ljóst hefur verið í nokkurn tíma að Muto yrði leikmaður Newcastle en hann skrifaði undir fjögurra ára samning eftir að hafa verið keyptur frá Mainz í Þýslalandi á 9,5 milljónir punda.
„Ég er mjög ánægður með að vera orðinn leikmaður Newcastle og hlakka mikið til að spila fyrir framan áhorfendur okkar. Það er heiður að vera fyrsti japanski leikmaðurinn til að fara í þetta stóra félag,\" segir Muto.

Hann á eftir að ganga frá nokkrum pappírsmálum og verður ekki með í æfingaleik gegn Augsburg á laugardaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.