Fotbolti.net
02.08.18 - 23:47
Elvar Geir Magnússon

Ögmundur til Larissa (Staðfest)

Ögmundur til Larissa (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðsmarkvörðurinn Ögmundur Kristinsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við AEL Larissa í Grikklandi.

Ögmundur á fimmtán landsleiki að baki en hann var ekki valinn í lokahópinn fyrir HM í Rússlandi í sumar.
Nokkur félög reyndu að fá Ögmund, sem er 29 ára, í sínar raðir fyrir næsta tímabil en hann hefur undanfarið spilað í efstu deild í Hollandi, Eredivisie, með S.B.V. Excelsior.

Ögmundur er fenginn til Larissa sem fyrsti markvörður liðsins en liðið varð í 12.sæti í grísku úrvalsdeildinni á seinasta tímabili.

Hann hóf meistaraflokksferil sinn með Fram, sínu uppeldisfélagi, en spilaði svo með Randers og Hammarby í atvinnumennskunni.

Hér að neðan má sjá mynd af Ögmundi við undirskriftina í Grikklandi.
Ögmundur til Larissa (Staðfest)
Canon

Mynd: Aðsend

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.