02.08.18 - 11:13
Elvar Geir Magnússon
Portúgalskur bakvörður í ÍBV (Staðfest)

Diogo er mættur í treyju ÍBV.

Mynd: ÍBV

Diogo er mættur í treyju ÍBV.

Mynd: ÍBV
Portúgalinn Diogo Coelho hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV.
Diogo er 26 ára vinstri bakvörður og hefur undandarið spilað í annari deild í Portúgal en á þessu ári á hann að baki 26 leiki í Ledman Liga Pro, næstu efstu deild í Portúgal.

Diogo á að fylla skarðið sem Felix Örn Friðriksson skildi eftir sig þegar hann gekk í raðir danska úrvalsdeildarfélagsins Vejle.
Félagaskiptaglugganum var lokað þegar ágústmánuður gekk í garð en ÍBV hafði sent inn félagaskipti Diogo áður en hann lokaði. Nú hefur svo verið gengið frá öllum pappírsmálum.
Stigasöfnun bikarmeistara ÍBV hefur gengið býsna vel að undanförnu, liðið hefur gert tvö jafntefli og unnið tvo af síðustu fjórum leikjum. Liðið er í níunda sæti Pepsi-deildarinnar, fjórum stigum fyrir ofan fallsæti.