Fotbolti.net
02.08.18 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Xande Silva til West Ham (Staðfest)

Xande Silva í unglingalandsleik með Portúgal.

Xande Silva í unglingalandsleik með Portúgal.

Canon

Mynd: Getty Images

West Ham hefur verið með opið veski í sumar og nú hefur félagið fengið 21 árs portúgalskan framherja, Xande Silva.

Silva hefur gert þriggja ára samning en hann kemur frá portúgalska félaginu Vitoria.
Manuel Pellegrini hefur fengið nóg af peningum til leikmannakaupa og er búinn að eyða meira en 100 milljónum punda í sumar.

Áður hafði hann fengið Felipe Anderson, Andriy Yarmolenko, Jack Wilshere, Issa Diop, Ryan Fredericks, Fabian Balbuena og Lukasz Fabianski. Fleiri eiga líklega eftir að bætast í hópinn áður en glugganum verður lokað í næstu viku.

Talið er að West Ham muni fyrst nota Silva með varaliðinu, U23 liðinu, og fylgjast með framgangi hans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.