Fotbolti.net
02.08.19 - 19:19
Ívan Guðjón Baldursson

Augsburg búið að kaupa Reece Oxford (Staðfest)

Augsburg búið að kaupa Reece Oxford (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Augsburg er búið að staðfesta kaup á Reece Oxford, sem kemur frá West Ham United.
Kaupverðið er óuppgreint en talið nema tæplega 5 milljónum punda. Oxford hreif þjálfarateymi Augsburg í fyrra þegar hann var hjá liðinu á láni og því var ákveðið að kaupa hann, enda á gjafaprís.

Oxford fékk að spila 12 leiki fyrir West Ham tímabilið 2015-16 og vakti mikla athygli á sér enda var hann aðeins 18 ára og þótti standa sig vel.

Hann verður 21 árs í október og getur leikið bæði í vörn og á miðju. Hann á 35 leiki fyrir yngri landslðin en samtals hefur hann spilað 38 meistaraflokksleiki með félagsliðum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.