02.08.19 - 00:02
Ívan Guðjón Baldursson
Dani Alves til Sao Paulo (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíski bakvörðurinn Dani Alves er búinn að skrifa undir samning við Sao Paulo í heimalandinu.
Alves er 36 ára og hefur leikið fyrir Bahia, Sevilla, Barcelona, Juventus og PSG. Hann hefur lengi verið talinn einn af bestu bakvörðum heims og hefur enn uppá margt að bjóða þrátt fyrir aldurinn.
Hann er goðsögn í Brasilíu þar sem hann hefur spilað 115 A-landsleiki og gert í þeim 8 mörk. Hann var mikilvægur hlekkur í liði Brasilíu sem vann Copa America fyrr í sumar.
Alves skrifar undir þriggja ára samning við Sao Paulo og kemur á frjálsri sölu enda rann samningur hans við PSG út í sumar.
Sao Paulo er meðal sterkustu liða Brasilíu en hefur þó ekki unnið deildina síðan 2008. Félagið vann Meistaradeildina (Copa Libertadores) 2005 og HM félagsliða hálfu ári síðar. Síðasti titillinn kom 2012 þegar liðið hreppti Suður-Ameríkubikarinn (Copa Sudamericana).