02.08.19 - 12:08
Ívan Guðjón Baldursson
Derby kaupir Bielik af Arsenal (Staðfest)
Gæti orðið dýrastur í sögu félagsins

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Derby County er búið að festa kaup á pólska varnarmanninum Krystian Bielik.
Bielik kemur frá Arsenal og skrifar undir fimm ára samning við sitt nýja félag.
Bielik er 21 árs miðvörður sem hefur verið á mála hjá Arsenal í fjögur ár. Hann þykir ekki nógu góður fyrir aðalliðið og því ákveðið að selja hann.
Derby borgar 7.5 milljónir punda en sú upphæð gæti farið upp í 10 milljónir með árangurstengdum greiðslum. Bielik verður dýrasti leikmaður í sögu Derby ef kaupverðið nær 10 milljónum.
Bielik gerði góða hluti á láni hjá Charlton á síðasta tímabili en árið 2017 lék hann fyrir Birmingham og býr því yfir reynslu úr Championship deildinni.

Here we go.
— Derby County (@dcfcofficial) August 2, 2019
🤩 pic.twitter.com/B7U9APQXES