02.08.19 - 19:09
Ívan Guðjón Baldursson
Gbamin kominn til Everton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Everton er búið að staðfesta kaupin á miðjumanninum Jean-Philippe Gbamin sem kemur frá Mainz fyrir 23 milljónir punda. Kaupverðið getur orðið að 30 milljónum með aukagreiðslum.
Gbamin á að leysa stöðu Idrissa Gana Gueye af hólmi en hann var seldur til Paris Saint-Germain í júlí fyrir um 30 milljóniir.
Gbamin verður 24 ára í nóvember og á ellefu A-landsleiki að baki fyrir Fílabeinsströndina, þrátt fyrir að hafa spilað 24 leiki með yngri landsliðum Frakklands.
Hann hefur verið fastamaður í byrjunarliðum Maniz og Lens allan ferilinn og nú telur hann vera kominn tíma til að leita á ný mið.

👋 | Good evening, Blues... pic.twitter.com/ryZFnKLcNo
— Everton (@Everton) August 2, 2019