02.08.19 - 18:34
Ívan Guðjón Baldursson
Newcastle fær Saint-Maximin og Willems (Staðfest)

Saint-Maximin hefur spilað yfir 125 leiki í efstu deild franska boltans.

Mynd: Getty Images

Newcastle United var að tilkynna komu tveggja nýrra leikmanna í herbúðir félagsins.
Franski kantmaðurinn Allan Saint-Maximin skrifar undir sex ára samning en hann kemur frá Nice fyrir 16.5 milljónir punda.
Hann er 22 ára gamall og skoraði 6 mörk í 34 deildarleikjum á síðustu leiktíð. Hann þykir mikið efni og á 32 leiki að baki fyrir yngri landslið Frakklands.
Þá er hollenski bakvörðurinn Jetro Willems kominn á eins árs lánssamningi frá Eintracht Frankfurt.
Willems er 25 ára og hefur spilað sem vnistri bakvörður hjá Sparta Rotterdam og PSV Eindhoven auk Frankfurt.
Það fylgir kaupmöguleiki með lánssamningi Willems en hann á 22 A-landsleiki að baki fyrir Holland og spilaði 64 leik á tveimur árum hjá Frankfurt.

✍🏽 @asaintmaximin has signed a six-year deal!
— Newcastle United FC (@NUFC) August 2, 2019
Full story: https://t.co/xEospEWEM3 #NUFC pic.twitter.com/96oozrpFou