Fotbolti.net
02.08.19 - 14:55
Ívan Guðjón Baldursson

Peacock-Farrell kominn til Burnley (Staðfest)

Peacock-Farrell kominn til Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Burnley er búið að ganga frá félagaskiptum á tveimur leikmönnum sem ganga í raðir félagsins.
Annar þeirra er markvörðurinn Bailey Peacock-Farrell, sem lék 29 leiki fyrir Leeds United á síðustu leiktíð. Hann er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Burnley.

Hann er 22 ára og á 9 A-landsleiki að baki fyrir Norður-Írland. Talið er að Burnley greiði 3 milljónir punda fyrir.

Hinn heitir Adam Phillips. Hann er 21 árs miðjumaður sem skrifar aðeins undir eins árs samning. Phillips þótti mikið efni á sínum tíma og lék fyrir U16 og U17 landslið Englendinga.

Hann er uppalinn hjá Liverpool en þótti ekki nógu hæfileikaríkur og skipti því yfir til Norwich. Þar gekk ekki vel og rann samningur hans við félagið út fyrir mánuði.

Phillips kom til Burnley á reynslu og hreif þjálfarateymið nóg til að vinna sér inn samning. Hann mun spila fyrir U23 liðið til að byrja með.

Joel Senior, Ryan Cooney, Erik Pieters og Jay Rodriguez hafa allir gengir til liðs við félagið í sumar. Tom Heaton var seldur til Aston Villa fyrir 8 milljónir og á Peacock-Farrell að fylla í skarð hans.

Byrjunarliðsbaráttan verður þó hörð þar sem Nick Pope og Joe Hart eru í baráttu um byrjunarliðssæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.