02.08.19 - 18:51
Ívan Guðjón Baldursson
Pedro Neto og Bruno Jordao komnir til Wolves (Staðfest)

Pedro Neto og Bruno Jordao kátir á jólaglöggi Lazio.

Mynd: Getty Images

Nuno Espirito Santo er búinn að bæta tveimur nýjum leikmönnum við leikmannahóp Wovles fyrir komandi tímabil.
Þeir heita Pedro Neto og Bruno Jordao og hafa verið saman í liði undanfarin þrjú ár. Þeir voru báðir hjá Braga og héldu svo saman til Lazio sumarið 2017.
Neto er 19 ára kantmaður á meðan Jordao er 20 ára miðjumaður. Á milli sín eiga þeir 48 leiki fyrir yngri landslið Portúgala.
Báðir eru leikmennirnir efnilegir Portúgalar. Það ætti ekki að koma mikið á óvart enda er Espirito Santo sjálfur frá Portúgal og var þekktur fyrir það í fyrra að sækjast mikið í Portúgala til að styrkja Úlfana. Þeir kosta 18 milljónir punda samtals.
Þetta eru þó fyrstu Portúgalar sumarsins en hingað til hefur félagið krækt í Raul Jimenez, Leander Dendoncker, Jesus Vallejo og Patrick Cutrone.

A Friday-night double! Welcome to Wolves, Pedro Neto and Bruno Jordao! 👋#WelcomeNeto#WelcomeJordao
— Wolves (@Wolves) August 2, 2019
✍🐺 pic.twitter.com/xpPg30Kscr