Fotbolti.net
02.08.19 - 11:33
Ívan Guðjón Baldursson

Sheffield United fær McBurnie fyrir metfé (Staðfest)

Sheffield United fær McBurnie fyrir metfé (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield United var að bæta félagsmet með kaupunum á Oliver 'Oli' McBurnie. Hann er 23 ára framherji sem kemur til félagsins frá Swansea City.
McBurnie á 23 leiki að baki fyrir yngri landslið Skotlands og gerði 26 mörk í 62 leikjum hjá Swansea.

Sheffield Utd greiðir 17 milljónir punda fyrir McBurnie en sú upphæð mun hækka með tímanum og er talin geta farið upp í 20-25 milljónir með aukagreiðslum.

McBurnie er áttundi leikmaðurinn sem gengur í raðir nýliða úrvalsdeildarinnar í sumar. Phil Jagielka og Ravel Morrison komu báðir frítt á meðan Ben Osborn, Luke Freeman, Callum Robinson og Lys Mousset kostuðu rúmlega 26 milljónir samanlagt. Markvörðurinn Dean Henderson kom á lánssamning.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.