Fotbolti.net
02.08.19 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Snæfell fær Kristinn Magnús frá Ólafsvík (Staðfest)

Snæfell fær Kristinn Magnús frá Ólafsvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Snæfell er búið að staðfesta komu Kristins Magnúsar Péturssonar sem lék 19 leiki fyrir Víking Ólafsvík í fyrra.
Kristinn er fæddur 1996 og hefur í heildina leikið 44 keppnisleiki fyrir Víking Ó. með stuttum stoppum á Grundarfirði 2013 og hjá Sindra 2016.

Hann meiddist svo og var frá sumarið 2017 en kom sterkur til baka í fyrra.

Þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára hefur Kristinn leikið í öllum deildum íslenska boltans nema einmitt 4. deildinni, þar sem Snæfell er í harðri toppbaráttu við Hvíta riddarann og Kormák/Hvöt í B-riðlinum.

Hann hefur skorað í öllum keppnum nema í efstu deild, þar sem hann á aðeins fimm leiki að baki. Hann gæti því bæst í hóp þeirra sem skorað hafa í öllum deildum íslenska boltans gangi vel á Snæfelli.

Þetta er gríðarlegur liðsstyrkur fyrir Snæfellinga sem töpuðu 1-0 fyrir Kormáki/Hvöt í síðustu umferð. Næstu leikir eru auðveldir heimaleikir gegn KM og Afríku sem verma botnsætin og eru samtals með -97 í markatölu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.