Fotbolti.net
02.08.19 - 13:59
Ívan Guðjón Baldursson

Zenit fær Malcom frá Barcelona (Staðfest)

Malcom á harðaspretti í úrslitaleik spænska bikarsins.

Malcom á harðaspretti í úrslitaleik spænska bikarsins.

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski kantmaðurinn Malcom er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Zenit frá Sankti Pétursborg í Rússlandi.
Zenit er ríkjandi Rússlandsmeistari og er með fullt hús stiga eftir þrjár fyrstu umferðirnar í sumar.

Meistararnir eru sagðir greiða um 45 milljónir evra fyrir Malcom, sem er aðeins hærra kaupverð en Barca borgaði fyrir ári síðan þegar hann kom frá Bordeaux.

Malcom er 22 ára og fékk lítið af tækifærum undir stjórn Ernesto Valverde hjá Barcelona. Hann kom aðeins við sögu í 24 leikjum og skoraði 4 mörk.

Malcom var eftirsóttur af helstu liðum enska boltans í fyrra og núna fær hann tækifæri til að sanna sig í Rússlandi.

Branislav Ivanovic, Yuri Zhirkov og Emiliano Rigoni eru meðal leikmanna Zenit.

Hér fyrir neðan má sjá kynningarmyndbandið frá Zenit. Þar er skotið á AS Roma sem var næstum búið að krækja í Malcom í fyrra.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.