Fotbolti.net
02.08.26 - 15:30
Brynjar Ingi Erluson
Franski boltinn

Evrópumeistararnir leggja fram formlegt tilboð í Godts

Evrópumeistararnir leggja fram formlegt tilboð í Godts
Canon

Mynd: EPA

Tvöfaldir Evrópumeistarar Paris Saint-Germain hafa lagt fram formlegt tilboð í belgíska vængmanninn sem spilar með Ajax í Hollandi.
PSG hefur átt í viðræðum við Ajax undanfarna daga og fengið þau skilaboð að hollenska félagið sé tilbúið að selja Godts.

Frakkarnir hafa því lagt fram formlegt tilboð upp á 45 milljónir evra. Ajax er líklegt til að hafna því enda er félagið sagt vilja um 60 milljónir fyrir leikmanninn.

Godts er 21 árs gamall og hefur þegar sagt já við að ganga í raðir PSG ásamt því að hafa samið um kaup og kjör.

PSG ætlar að fá tvo vængmenn í sumar og er einnig að ganga frá kaupum á Maghnes Akliouche frá Mónakó. Þau félagaskipti ættu að ganga í gegn á næstu dögum.

Godts á að baki tvo A-landsleiki fyrir Belgíu en var ekki í landsliðshópnum á heimsmeistaramótinu í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.