02.08.26 - 14:00
Brynjar Ingi Erluson
Hafa lengi átt í viðræðum um Vini Jr

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ekki er útilokað að Englandsmeistarar Arsenal kaupi Vinicius Junior frá Real Madrid í sumar. Mario Cortegana hjá Athletic segir félagið hafa rætt við umboðsmenn Brasilíumannsins mánuðum saman.
Vini Jr hefur verið mikið orðaður við Arsenal síðustu vikur enda ganga samningaviðræður hans við Real Madrid illa.
Madrídingar hafa boðið honum 20 milljónir evra í árslaun en hann vill fá 30 milljónir, svipað og Kylian Mbappe fær hjá félaginu.
Real Madrid hefur ekki viljað ganga svo langt og ekkert bendir til þess að það breytist. Cortegana segir að margir áhrifamenn innan félagsins vilji því selja Vini Jr í sumar frekar en að eiga á hættu að missa hann frítt að ári.
Florentino Perez tekur lokaákvörðunina en hann getur ekki beðið endalaust. Eftir því sem líður á sumarið verður samningsstaða Real Madrid veikari.
Arsenal hefur rætt við umboðsmenn Vini Jr mánuðum saman. Félagið er tilbúið að mæta launakröfum hans og bjóða honum vænan undirskriftarbónus.
Mikel Arteta var spurður um Brasilíumanninn eftir 4-1 sigurinn á Girona í gær. Hann hló, svaraði engu og gekk í burtu. Það var alla vega ekki til þess að slá á sögusagnirnar.