Fotbolti.net
02.08.26 - 12:30
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Fyrrum samherji Sverris til Roma (Staðfest)

Fyrrum samherji Sverris til Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: AS Roma

Ítalska félagið AS Roma hefur landað gríska landsliðsmanninum Kostas Koulierakis frá þýska félaginu Wolfsburg fyrir 16,5 milljónir evra.
Koulierakis er 22 ára gamall miðvörður sem gerði góða hluti með PAOK í heimalandinu áður en hann gekk til liðs við Wolfsburg.

Hann lék meðal annars við hlið Sverris Inga Ingasonar í vörn PAOK.

Koulierakis þreytti frumraun sína með gríska landsliðinu árið 2022 og á nú að baki 22 A-landsleiki.

Hann hefur verið í lykilhlutverki í vörn Wolfsburg undanfarin tvö ár og er nú á leið til Roma. Ítalska félagið greiðir 16,5 milljónir evra fyrir hann og geta 1,5 milljónir bæst við í árangurstengdar greiðslur.

Wolfsburg tryggði sér einnig 20 prósenta hlutdeild í næstu sölu leikmannsins.

Koulierakis verður tíundi Grikkinn til að spila fyrir Roma. Traianos Dellas og Kostas Manolas eru meðal þeirra sem hafa áður klæðst treyju félagsins og þá lék Kostas Tsimikas þar á láni frá Liverpool á síðasta tímabili.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.