02.08.26 - 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Köln á eftir leikmanni Tottenham

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Mikey Moore, leikmaður Tottenham, er líklega á leið til Köln á láni.
Fabrizio Romano greinir frá því að félagið hafi lagt fram lánstilboð í þennan 18 ára gamla sóknarmann.

Það er mikill áhugi á honum en Köln er líklegasti áfangastaður hans eins og staðan er í dag.
Moore var á láni hjá Rangers á síðustu leiktíð og skoraði sjö mörk í 33 deildarleikjum. Hann var valinn besti ungi leikmaður deildarinnar.
Ísak Bergmann Jóhannesson er leikmaður Köln. Liðið var nýliði í efstu deild í Þýskalandi á síðustu leiktíð og hafnaði í 14. sæti.