Fotbolti.net
02.08.26 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Valentin Barco til Chelsea (Staðfest)

Valentin Barco til Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Argentínumaðurinn Valentin Barco er genginn til liðs við Chelsea frá Strasbourg. Hann skrifar undi sjö ára samning.

Barco er 21 árs gamall vinstri bakvörður en hann gekk til liðs við Strasbourg frá Brighton í fyrra.
Hann kom að 12 mörkum í 43 leikjum í öllum keppnum á síðustu leiktíð.

Hann var hluti af argentíska hópnum á HM í sumar þar sem liðið tapaði í úrslitum gegn Spáni. Hann kom við sögu í einum leik þegar hann kom inn á sem varamaður í 3-1 sigri á Jórdaníu í lokaumferð riðlakeppninnar.

Hann mun koma til móts við Chelsea þegar HM fríinu hans lýkur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.