02.08.26 - 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kristall á skoraði í dramatískum sigri gegn Freysa

Mynd: Sportsklubben Brann

Mynd: Sportsklubben Brann
Það var Íslendingaslagur þegar Rosenbrog heimsótti Brann í norsku deildinni í kvöld. Freyr Alexandersson, þjálfari Rosenborg, er fyrrum þjálfari Brann.
Eggert Aron Guðmundsson var í byrjunarliði Brann, Kristall Máni Ingason kom inn á sem varamaður en Sævar Atli Magnússon var ónotaður varamaður.

Brann var með 1-0 forystu í hálfleik en Rosenborg sneri blaðinu við og skoraði tvö mörk með sex mínútna millibili. Kristall kom inn á og jafnaði metin þegar stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma. Brann skoraði síðan sigurmark í uppbótatíma.
Brann er í 6. sæti með 22 stig eftir 16 umferðir en Rosenborg er í 10. sæti með 18 stig eftir 15 umferðir.
Atli Barkarson spilaði 86 mínútur þegar Sogndal tapaði 3-2 gegn Lyn í næst efstu deild í Noregi. Hinrik Harðarson kom ekki við sögu í 4-1 sigri Odd gegn Asane. Breki Baldursson var í byrjunarliði Asane.
Odd er í 5. sæti með 28 stig eftir 16 umferðir. Sogndal er í 11. sæti með 18 stig og Asane er á botninum með 13 stig.
Kristian Nökkvi Hlynsson spilaði 71 mínútu í 2-1 tapi Twente gegn Genk í æfingaleik.