Fotbolti.net
02.09.16 - 17:03
Magnús Már Einarsson

Aguero fer í þriggja leikja bann (Staðfest)

Aguero fer í þriggja leikja bann (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sergio Aguero, framherji Manchester City, hefur verið úrskurðaður í þriggja leikja bann.

Aguero verður því í banni í nágrannaslagnum gegn Manchester United um aðra helgi.
Aguero var fyrr í vikunni ákærður fyrir að hafa gefið Winston Reid olnbogaskot í leik gegn West Ham um síðustu helgi. Andre Marriner, dómari leiksins, sá ekki atvikið.

Manchester City ákvað að áfrýja ákærunni. Aganefnd enska knattspyrnusambandsins fór yfir málið í dag og vísaði áfrýjuninni frá. Því er staðfest að Aguero fer í bann.

Auk leiksins gegn Manchester United þá verður Aguero í banni í leikjum gegn Bournemouth og Swansea.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.