Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. september 2019 18:26
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Bobby Duncan til Fiorentina (Staðfest)
Bobby Duncan.
Bobby Duncan.
Mynd: Getty Images
Bobby Duncan er kominn til Fiorentina á Ítalíu frá Liverpool en þetta var staðfest nú í kvöld.

Þessi 18 ára gamli sóknarmaður sem er frændi Liverpool goðsagnarinnar Steven Gerrard skrifaði undir þriggja ára samning við ítalska félagið. Kaupverðið er talið vera um 2 milljónir punda.

Duncan vildi fá meiri spilatíma hjá Liverpool, umboðsmaður hans fór mikinn á Twitter á dögunum þar sem hann sagði Liverpool reyna að halda honum hjá félaginu gegn hans vilja en Duncan er nú kominn til Ítalíu þar sem hann mun spila að minnsta kosti næstu þrjú árin.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner