Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
banner
   mán 02. september 2019 10:31
Magnús Már Einarsson
Chicharito í Sevilla (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Spænska félagið Sevilla hefur keypt framherjann Javier Hernandez frá West Ham á 7,5 milljónir punda.

Chicharito, eins og Mexíkóinn er kallaður, hefur verið orðaður við önnur félög undanfarna mánuði en framtíð hans hefur verið í óvissu eftir að Hamrarnir keyptu Sebastien Haller í sumar.

Hann mun nú reyna fyrir sér í spænska boltanum á nýjan leik en Chicharito spilaði með Real Madrid tímabilið 2014/2015.

Chicharito hefur á ferlinum einnig spilað með Manchester United og Bayer Leverkusen,


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner