Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. september 2019 09:16
Magnús Már Einarsson
Darmian til Parma (Staðfest)
Darmian fagnar marki á Old Trafford.
Darmian fagnar marki á Old Trafford.
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur selt bakvörðinn Matteo Darmian til Parma á 1,4 milljón punda.

Hinn 29 ára gamli Darmian skrifaði undir fjögurra ára samning hjá Parma sem eru nýliðar í Serie A.

Darmian kom til Manchester United frá Torino árið 2015 en hann á samtals 92 leiki að baki með enska félaginu.

Á síðasta tímabili spilaði Darmian einungis sjö leiki með Manchester United.

Athugasemdir
banner
banner