Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. september 2019 21:05
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Falcao til Galatasaray (Staðfest)
Radamel Falcao.
Radamel Falcao.
Mynd: Getty Images
Galatasaray staðfesti í kvöld kaupin á Kólumbíumanninum Radamel Falcao frá Mónakó.

Samningur Falcao við Galatasaray gildir til þriggja ára.

Mónakó keypti Falcao frá Atletico Madrid fyrir 50 milljónir punda árið 2013. Hann lék 139 leiki fyrir Mónakó og skoraði í þeim 83 mörk.

Falcao var tvisvar lánaður á tíma sínum hjá félaginu, fyrst til Manchester United tímabilið 2014/15 og tímabilið 2015/16 lék hann á láni hjá Chelsea.

Hér að neðan má sjá hvernig Galatasaray kynnti Falcao.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner