Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. september 2019 23:34
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
PSG lánar Jesé til Sporting (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Paris Saint-Germain staðfesti það í kvöld að Argentínski sóknarmaðurinn Mauro Icardi myndi spila með liðinu út þessa leiktíð eftir að hafa verið lánaður frá Inter.

Það bættist einn sóknarmaður í hópinn og þá var annar lánaður út en það var spænski sóknarmaðurinn Jesé sem hefur leikið á láni bæði á Spáni og Englandi eftir að hann kom til PSG árið 2016.

Jesé reynir nú fyrir sér í nýju landi en hann var lánaður til Sporting í Portúgal út þessa leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner
banner