Andre Silva lánaður frá AC Mílan til Frankfurt
AC Mílan staðfesti nú rétt í þessu að Króatinn Ante Rebic muni leika með félaginu næstu tvö árin.
Rebic kemur til AC Mílan á láni frá Eintracht Frankfurt í Þýskalandi en þar hefur hann leikið frá árinu 2016, hjá Frankfurt skoraði hann 25 mörk í 100 leikjum.
AC Mílan borgar 5 milljónir evra fyrir þennan tveggja ára lánssamning og þeir geta svo keypt Rebic á 25 milljónir evra þegar lánssamningurinn rennur út.
Ítalska félagið staðfesti einnig í kvöld að portúgalski framherjinn Andre Silva hafi verið lánaður til Eintracht Frankfurt í tvö ár, Frankfurt er talið borga 5 milljónir evra fyrir lánssamninginn líkt og AC Mílan gerir fyrir Rebic.
Comunicato Ufficiale: Ante Rebić ⬇https://t.co/s2zh4STVPy
— AC Milan (@acmilan) September 2, 2019
Frankfurts neue Nr. 3⃣3⃣ @andrevsilva19 schließt sich auf zweijähriger Leihbasis Eintracht Frankfurt an 👏#SilvaLining #SGEhttps://t.co/N5uSlWk6A6
— Eintracht Frankfurt (@Eintracht) September 2, 2019
Athugasemdir