Fotbolti.net
02.09.19 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sergio Rico til PSG (Staðfest) - Areola og Navas að skipta?

Sergio Rico.

Sergio Rico.

Canon

Mynd: Getty Images

Markvörðurinn Sergio Rico er kominn til Paris Saint-Germain á láni frá Sevilla út leiktíðina.
Rico, 26 ára, var í láni hjá Fulham á síðasta tímabili og spilaði hann 29 leiki er liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni.

Alphonse Areola, markvörður PSG, hefur verið orðaður við Real Madrid og spurning hvort að hann endi þar. Areola spilaði ekki með PSG í sigri gegn Metz í frönsku úrvalsdeildinni á föstudag. Hinn 19 ára gamli Marcin Bulka, frá Póllandi, var í markinu í þeim leik.

Talið er að ef Areola fari til Real Madrid þá muni Keylor Navas fara í hina áttina, til Parísar. Verður Rico þá varamarkvörður fyrir hann.

PSG er með níu stig eftir fjóra leiki í frönsku úrvalsdeildinni.
Alphonse Areola.

Alphonse Areola.

Canon

Mynd: Getty Images

Keylor Navas.

Keylor Navas.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.