Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mán 02. september 2019 17:52
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Tottenham selur Edwards til Portúgals (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Englendingurinn ungi Marcus Edwards er genginn til liðs við Vitoria í Portúgal, Edwards kemur til Vitoria frá Tottenham þar sem hann hefur verið frá því að hann var 8 ára.

Miklar vonir voru bundar við Edwards hjá Tottenham, hann lék hins vegar aðeins einn leik fyrir aðalliðið.

Hinn 20 ára gamli Edwards var tvisvar lánaður frá Tottenham, fyrst fór hann til Norwich og nú síðast til Excelsior í Hollandi.


Athugasemdir
banner
banner